miðvikudagur, janúar 27, 2010

Baba Ghanoush

Ég rakst eitt sinn á vefsíðu hjá gelgju í Árbænum. Hún er eflaust jafn heimsk og ég myndi segja frá og ég ætla ekki að gefa henni neinn vafa á öðru. En þar greip ég ein spakmæli...

"Það eru tveir dagar sem skipta máli í lífi manns, þegar maður fæðist og þegar maður deyr, Það sem þú gerir á milli skiptir engu máli"

Ekkert skrýtið að gefa svona út á mánudegi. Hún hefur sennilega drukkið einn Breezer og fengið sér spítt á fyrsta fylleríinu í eftirlitslausu unglingapartýi. Annað hvort öskrandi "Djöfull er þetta gott djamm!" eða þá spurt hvern og einn dreng í húsinu hvort það væri séns á sleik.

Spurningin er hvort þetta sé ekki bara rétt? Fljótlega myndi einhver "besserwisserinn" svara(Ég þekki þá nokkra, óþarfi að nefna einhver nöfn en þið vitið hverjir þið eruð!) "Nei, þú ræður algjörlega örlögum þínum, þú getur ráðið hvort þú gerir ekkert allt þitt líf eða lifir það til fullnustu." Gott og gilt svar hjá leiðinlega fólkinu sem ég myndi einfaldlega biðja um að láta mig í friði og helst ekki koma við mig. Ég held að það sé vel hægt að skipta fólki í tvo hópa, þá sem fljóta bara með lífinu og þá sem gera einhvað við líf sitt. Fyrri hópurinn þá klárlega neikvæður en hinn jákvæður, samt kalla ég það "að fljóta bara með" þegar fólk lærir einhvað fag, fær sér vinnu og eignast fjölskyldu. Er ekki til einhvað merkilegra heldur en þetta? Eða er þetta líf ekki merkilegra en þetta? Á maður ekki bara að vera temmilega kærulaus?

En hvað mig varðar þá er ég bara bíða eftir að vinna Víkingalottóið....

miðvikudagur, desember 03, 2008

Veikur

Þegar við félagarnir, ég og dóri, höfum komið okkur notalega fyrir í sófanum eftir vinnu, þá sér Dóri oftast um það að leigja myndir á VOD hluta Skjásins. Þær tvær myndir sem urðu fyrir valinu hjá Dóra eru um margt líkar og eiga sitthvað sameiginlegt, ég furða mig samt á valinu því það virtist vera að Dóri hafi ákveðið að það yrði þema á þessu videokvöldi.

Fyrsta myndin var "The Air up there" með Kevin Bacon og seinni var "Cool Runnings" með John Candy. Í báðum myndunum er það lánlaus hvítur maður sem var viðloðandi við íþróttagrein en þurfti að hætta útaf meiðslum. Þeir taka báðir að sér að þjálfa hóp af svertingjum sem kunna sama sem ekki neitt í viðkomandi grein og ná góðum árangri.


Langt síðan maður sá þær og eru enn ágætis afþreying. Það er reyndar ekkert fyndnara en að sjá hóp af svertingjum sem kunna ekki að rekja körfubolta og finnst rosalega kalt að keppa á vetrarólympíuleikunum.......


UPPFÆRT!


Næsta mynd sem varð fyrir valinu tengdist ekki þema kvöldsins en þar sem John Candy átti stórleik í Cool Runnings þá lá beinast við að leigja myndina "Uncle Buck" með þeim félögum John Candy og barnastjörnunni Macaulay Culkin. Þema kvöldsins hefur því breyst úr "Gamanmyndir með blökkumönnum sem ná góðum árangri og hvítur bandaríkjamaður þjálfar þá" í "John Candy's Best Career Movies"

Af hverju í andskotanum átti Jói Guðna þessa mynd?????

þriðjudagur, október 07, 2008

Keppan ríður yfir...

Kreppan hefur leikið Vesturgötuna illa, nú herjar á okkur verðbólga og sjúkdómar. Ég(Dúlli) og Snúlli(Dóri) erum fárveikir með einhverja flensu sem er tilkomin vegna ástandsins á fjármálamörkuðunum. Svo slæmt er ástandið hérna að Snúlli fékk sér Súpu, brauð og vatn í kvöldmat.

Engar nýlegar fréttir eru af Sandpíkunni sem stödd er út í Rússlandi að semja um lán.

Þetta er fljótt að gerast

Miðað við stöðu mála í gær er hlutirnir fljótir að gerast, yfirlýsingin um góðærið hér í 101 breyttist á örskammri stundu. Hér á Vesturgötunni hafa menn leitað til Rússa um lán upp á 2000 Evrur til að fjármagna 42" Full HD flatskjá, PS3 leikjatölvu og nýjasta Fifa09. Rússarnir hafa sagst vera mjög jákvæðir í sambandi við lánveitinguna og hefur Vesturgata 71 sent sinn helsta sérfræðing í röfli og nöldri til Rússlands í samningaviðræður, það er Breiðavíkurdrengurinn og sandpíkan Henry Birgir Olgeirsson sem kemur til móts við Rússnesku sendinefndina í Múrmansk, sem leidd verður af Íþróttamálaráðherra Rússlands, Ivan Drago.

Fólk er beðið að fylgjast með gangi mála á síðunni sjálfri og facebook.

mánudagur, október 06, 2008

Bullandi góðæri

Það er bara bullandi góðæri hérna á Vesturgötunni, enda allt annað hagkerfi en sú sem þjóðin þekkir, á meðan skipper Verðbólgús Verðbólguson siglir þjóðarskútunni í strand. Þið getið komið hingað inn í þetta fríríki okkar með alla ykkar peninga og eignir en það myndi ekki skipta neinu máli, hér er gjaldeyrin íslenskt neftóbak, Otrivin Menthol nefsprey og YumYum kjúklinganúðlur. Þó svo Óskar hafi gert heiðarlega tilraun að mæta hingað inn með Nezeril nefsprey og YumYum núðlur með kjötbragði. Hann komst fljótlega að því að það var verðlaust. Hann hélt því reyndar fram að nefsprey læknaði ekki Alzheimer og væri skaðlegt fyrir konur á meðgöngu. Það verður að fara kanna hvað þessum krökkum er kennt í líffræðinni í HÍ.

Hér á helgum er einnig starfrækt meðferðarheimili fyrir ógæfu- og útigangsmenn. Það útskrifaðist einn þess helgina, sá heitir Sigurvin Guðmundsson sem er kominn á gífurlegt "run" í lífinu. Hann fékk sér gott í kroppinn. Annar vistmaður, bolvíkingurinn Óttar Kristinn þarf hins vegar lengri tíma.

Sjóarinn síkáti er væntanlegur á heimilið í þessari viku. Nýkominn af sjónum og finnur ekkert fyrir kreppunni. Hann var einnig að vinna ferð til Barcelona á Núinu að hans sögn. Beðið er eftir staðfestingu frá Núinu um þetta enda Þóri ekki treystandi.

Stjörnublaðamaðurinn Birgir Olgeirs er einnig væntanlegur. Þið finnið hann sennilega rúntandi niður Laugaveginn á Subaru Legacy að flauta á guggur. Hann mun sennilega hanga með Reyni Trausta og Fjallabræðrum, eins skemmtilegt og það hljómar.

miðvikudagur, september 17, 2008

I want to hold your hand

Ég er að koma vestur á helginni, mögulegir farþegar með eru Valdís, Dóri Snúlli og Sigurvin(Tussa). Ætlum að fara á lokahófið hjá BÍ/Bolungarvík og detta almennilega í það. Tippa á að Kolbeinn fari í svuntuna, Dóri fær Ipodinn sinn aftur og Vinni fer í skemmtistaðasleik við þekkta einstaklinga úr bæjarlífinu.

Hér á Vesturgötu er bara spiluð tónlist, Fifa og lært stöku sinnum(Óskar). Annars kemur engin í heimsókn nema Sigurvin. Beggi félagi minn kíkti reyndar hérna við áður en við fórum á Skímó.

Það voru smá leiðindi hérna um daginn, ég og Dóri tókum Sigurvin í þurrt rassgatið allt kvöldið í Fifa og hann fór að væla um að gripið á "analoginu" væri svo lélegt á annarri fjarstýringunni. Málið er að hann er eini maðurinn sem notar "analogið" ásamt Óskari, Óttari og öllum hinum "Compare Hotness" gaurunum fyrir vestan. Þannig að þetta væl hans Sigurvins var skotið í kaf með laginu "We don't need another hero" með Tinu Turner í botni.....

Það er allt í góðu núna, Sigurvin tók sér viku til að jafna sig. Núna hlakkar öllum bara til að fara vestur í 2 daga og hafa gaman. Óskar er reyndar að fara á leik með Liverpool með fjölskyldunni. Síðan er hún Arna okkar alltaf að halda einhver sjúk náttfatapartý langt fram á nóttu með vinkonum sínum.

Fréttir:
  • Stjörnublaðamaðurinn Henry Birgir Olgeirsson hefur ekki kelað við neina stelpu í vikunni eftir Eddu Katrínar málið(Staðfest)
  • Ævar er 28 ára í dag, til hamingju sæti.
  • Óskar er alltaf að kveikja einhver reykelsi hérna í búðinni, enginn veit af hverju.

miðvikudagur, september 10, 2008

Lífið er ekki alltaf dans á rósum!

Heil og sæl gott fólk, þið hafið kannski öll tekið eftir því en lífið er ekki alltaf dans á rósum og það má með sanni segja að það eigi vel við líf mitt í dag. En það sem drepur mann ekki styrkir mann og stundum verður fólk bara að horfa fram á veginn þó að á móti blási. Hef gert það upp við mig að vera hress og jákvæður þó ég fái ekki allt sem ég vilji út úr þessu blessaða ömurlega lífi.

  • Ívar Péturs setti í sína fyrstu þvottavél í lífinu í dag(Staðfest)
  • Hann eldaði einnig kjúklingarétt fyrir heimalingana að Vesturgötu 71(Staðfest)
  • Stjörnublaðamaðurinn hann Henry Birgir Olgeirsson kelaði við Eddu Katrínu í Ögri(Staðfest)

Það er langþráð fríhelgi framundan, ég er spenntur fyrir föstudeginum. Á laugardeginum verður slakað á yfir enska boltanum og ef maður verður í stuði eins og ég er búinn að lofa sjálfum mér og fleirum þá er það SKÍMÓ á NASA. ÞAð var reyndar löngu planað en ég hef bara ekki nennt að kíkja neitt út undanfarið. Síðan á þarnæstu helgi ætla ég að reyna komast vestur og á lokahóf BÍ/Bolugnarvíkur, djöfulsins snilld verður það. Verður gott að komast vestur og fá frí frá þessari helvítis smáborg.

Lag dagsins er tileinkað manneskju..............


miðvikudagur, júlí 16, 2008

Mýrarboltinn

Jæja þá er farið að styttast í Mýrarboltann. Væri fínt ef menn skrifuðu í komment að þeir ætluðu að vera með og kommenta hvernig búningum menn vilja vera í.

Spurning hvort við kaupum okkur fótboltabúninga og látum merkja þá okkar nöfnum. Svo heyrði ég að Snævar vildi hafa búningina "sexy". Endilega fá response.

Menn fara síðan á skraning.is og skrá sig inn og velja liðið. Geta greitt þar líka skráningargjaldið.

Kommentið



Mýraboltinn 2008
Skráning í lið