fimmtudagur, apríl 17, 2008

Spurningakeppni Ívars

Ég var að sækja mér nýtt forrit sem heitir Camtasia studio 5, bara tjekka hvort það sé ekki betra en helvítis draslið sem movie maker er. En það kom á daginn að það er ekki alveg gallalaust og svona til að prófa það þá gerði ég litla spurningakeppni í því sem er í videoformi.

Hvet alla til að taka þátt og reyna við þessar fimm spurningar, bara spurning um að vera með og giska ef þú veist ekki neitt. Annars er þetta mjög létt. Kanski skemmtilegra ef fólk sendir svörin sín á ivarpeturs@gmail.com í stað þess að skrifa þau í komment þar sem allir sjá. Gott ef fólk er bara með póstinn opin því þá getur það skrifað svarið jafnóðum og ýtt líka á pásu á videoinu ef það þarf að hugsa sig um.



UPPFÆRT! það er kanski betra að fólk skrifi í komment, það nennir engin að senda mér póst. Svo er líka hljóð með þannig að fólk getur kveikt á hátölurunum.

STAÐAN

1-3. Valdís 4 rétt
1-3. Íris 4 rétt
1-3. Þór 4 rétt
4-6. Ævar 3 rétt
4-6. Halldór 3 rétt
4-6. Karitas 3 rétt
7-9. Tommi 2 rétt
7-9. Sigurvin 2 rétt
7-9. Gunnar Már 2 rétt
10. Gulli 1 rétt
11. Óttar 0 rétt

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Heim