laugardagur, maí 31, 2008

Myndablogg + Slúður = Ívar TEAMPLAYER

Er það satt sem ég heyrði hingað suður að Ásgeir Trukkalessa hefði fengið dæmt á sig víti á 93.mínútu í stöðunni 2-1 og í kjölfarið reynt að tækla dómarann sem hoppaði auðveldlega upp úr tæklingunni og sýndi Trukkalessunni umsvifalaust rauða spjaldið? Er gaurinn ekki 23 ára eða(Ævar er 25 ára)? ...hehe djók Geiri minn, ég hefði sennilega brugðist svipað við....uuuuu nei!


Þessi drengur gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna. Menn spyrja sig hvernig í ósköpunum þessi maður hafi náð að hefja sig á loft í leiknum, enda aldrei verið þyngri. Hann gjörsamlega ögraði allri Eðlisfræði eins og hún leggur sig. Maðurinn átti stórleik í dag. Sem er jákvætt fyrir BÍ en ekki fyrir þá sem þurfa að umgangast hann.

Því í fyrsta leiknum skeit hann á sig alla leið upp á hnakka. Var í fýlu í nokkra klukkutíma og kem mjög seint í Eurovisionpartýið mitt. Núna á hann eftir að vera svo góður með sig og fagna eins og asni þegar hann skorar í FIFA. "God I hate that guy" á vel við núna. En Dóri er bestur þegar hann heldur jafnvægi í leik sínum og lífinu. Þá gerist ekki neitt óvænt.

------------------------------------------------------------




You gotta love that guy! Hér er Halldór að leika í uppsetningu Litla Leikklúbbsins á verkinu Dýrin í Hálsaskógi.




-------------------------------------------------------


















Eigum við að ræða mig í óeirðabúningi eða? Ég var rosalegur þarna, gleymdi samt að greiða mig um morguninn og mætti seint í vinnu, ekki gott. Meis og kylfa er merki mitt.
----------------------------------------------------

















Þetta er víst ekki óalgeng sjón þegar Þór og Kolbeinn fara á "pottafyllerí". Það er gætt að öryggi allra enda báðir sjómenn og Þór með pungapróf í vasanum. Menn gæta þess að björgunarvesti séu vel skorðuð við líkamann áður en fyrsti bjórinn er opnaður.
-----------------------------------------------------





Framkvæmdarstjóri og formaður KSÍ í ekkert alltof góðum málum í fyrra. Mr. Peterson lét gömlu heyra það og sagði þeim að taka sig á í vinnunni. Annars væri mér og vini mínum honum Pandabirninum að mæta. Þeir lofuðu að hætta þessu kjaftæði enda vildu þeir ekki lenda í neinum vandræðum. ÞArna er ég nýbúinn að sleppa hálstakinu. Gleymdi líka að greiða mér áður en ég fór út, skamm.

0 Comments:

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Heim