When a man loves a woman
Já langt síðan seinast, akkúrat núna er ég að horfa á Andy Garcia og Meg Ryan í " When a man loves a woman", já sæll er hægt að væla meira í einni mynd?
Ég var á Ísafirði í tíu daga, það var frábært. Fyrsta helgin var skírn hjá Nonna og síðan mætti ég á æfingar hjá stórveldinu alla vikuna. Seinasta helgin var síðan eydd á Markaðsdögum og balli í Bolungarvík. Hafði ekki pælt í því að Daníel Ágúst er AFI, algjörir ellismellir í Ný Dönsk. Talandi um Daníel Ágúst, þá afsannaði hann þá kenningu um að það færi engin heilvita maður einn í bíó. Daníel sást einn á myndinni "Semi Pro" í sal C í Laugarásbíói núna í vor og hafði gaman af, að mér virtist.
Í vikunni gerði ég stórkaup á netinu, fyrir valinu varð útivallartreyja Arsenal frá árinu 91´-93'. Ég las um það á netinu að þetta væri talinn með ljótari treyjum sem gerðar hafa verið en mér finnst hún gullfalleg.
Omid Djalili er á Stöð 1 á Fimmtudögum, hann er sæmilegur. Mér finnst samt eitt atriði sem á víst að verða í fimmta þætti skemmtilegt. Hann er knattspyrnudómari sem ákveður að dæma leikinn og spila með öðruliðinu því þeim vantar menn.
Í lokin langar mig að sýna video svona til að minna Liverpool menn á það að þeir hafa ekki unnið alvöru titil í nærri 20 ár. Seinast þegar þeir reyndu að verja titilinn þá tók Arsenal þá í lokaleiknum með sigurmarki á seinustu mínútu frá Michael Thomas.
Jæja þarf að hætta, það er einhverf lítil prinsessa sem liggur hér við hlið mér að leika sér að tala fyrir apabangsa.
Krakkar, það er aldrei of seint að læra stafsetningu....
Ég var á Ísafirði í tíu daga, það var frábært. Fyrsta helgin var skírn hjá Nonna og síðan mætti ég á æfingar hjá stórveldinu alla vikuna. Seinasta helgin var síðan eydd á Markaðsdögum og balli í Bolungarvík. Hafði ekki pælt í því að Daníel Ágúst er AFI, algjörir ellismellir í Ný Dönsk. Talandi um Daníel Ágúst, þá afsannaði hann þá kenningu um að það færi engin heilvita maður einn í bíó. Daníel sást einn á myndinni "Semi Pro" í sal C í Laugarásbíói núna í vor og hafði gaman af, að mér virtist.
Omid Djalili er á Stöð 1 á Fimmtudögum, hann er sæmilegur. Mér finnst samt eitt atriði sem á víst að verða í fimmta þætti skemmtilegt. Hann er knattspyrnudómari sem ákveður að dæma leikinn og spila með öðruliðinu því þeim vantar menn.
Í lokin langar mig að sýna video svona til að minna Liverpool menn á það að þeir hafa ekki unnið alvöru titil í nærri 20 ár. Seinast þegar þeir reyndu að verja titilinn þá tók Arsenal þá í lokaleiknum með sigurmarki á seinustu mínútu frá Michael Thomas.
Jæja þarf að hætta, það er einhverf lítil prinsessa sem liggur hér við hlið mér að leika sér að tala fyrir apabangsa.
Krakkar, það er aldrei of seint að læra stafsetningu....


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim