Bullandi góðæri
Það er bara bullandi góðæri hérna á Vesturgötunni, enda allt annað hagkerfi en sú sem þjóðin þekkir, á meðan skipper Verðbólgús Verðbólguson siglir þjóðarskútunni í strand. Þið getið komið hingað inn í þetta fríríki okkar með alla ykkar peninga og eignir en það myndi ekki skipta neinu máli, hér er gjaldeyrin íslenskt neftóbak, Otrivin Menthol nefsprey og YumYum kjúklinganúðlur. Þó svo Óskar hafi gert heiðarlega tilraun að mæta hingað inn með Nezeril nefsprey og YumYum núðlur með kjötbragði. Hann komst fljótlega að því að það var verðlaust. Hann hélt því reyndar fram að nefsprey læknaði ekki Alzheimer og væri skaðlegt fyrir konur á meðgöngu. Það verður að fara kanna hvað þessum krökkum er kennt í líffræðinni í HÍ.
Hér á helgum er einnig starfrækt meðferðarheimili fyrir ógæfu- og útigangsmenn. Það útskrifaðist einn þess helgina, sá heitir Sigurvin Guðmundsson sem er kominn á gífurlegt "run" í lífinu. Hann fékk sér gott í kroppinn. Annar vistmaður, bolvíkingurinn Óttar Kristinn þarf hins vegar lengri tíma.
Sjóarinn síkáti er væntanlegur á heimilið í þessari viku. Nýkominn af sjónum og finnur ekkert fyrir kreppunni. Hann var einnig að vinna ferð til Barcelona á Núinu að hans sögn. Beðið er eftir staðfestingu frá Núinu um þetta enda Þóri ekki treystandi.
Stjörnublaðamaðurinn Birgir Olgeirs er einnig væntanlegur. Þið finnið hann sennilega rúntandi niður Laugaveginn á Subaru Legacy að flauta á guggur. Hann mun sennilega hanga með Reyni Trausta og Fjallabræðrum, eins skemmtilegt og það hljómar.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Heim